Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Fleiri myndir

26. mars 2008 klukkan 10:17
Hæ hæ krakkar mínir
Ég setti inn nokkrar fleiri árshátíðarmyndir en svo kláraðist plássið þannig að ég gat ekki sett allar mínar inn. Margar myndir koma líka skringilega út hérna sem dregur úr fegurð okkar. Þið sem eruð á facebook getið séð fleiri myndir frá mér þar.

Annars þakka ég bara fyrir stórskemmtilega árshátíð og skipuleggjurum fyrir vel heppnað kvöld. Þið sem komuð í bæinn, takk fyrir frábært tjútt Brosandi

Hvernig er annars stemningin í hópnum, ætla ekki allir að útskrifast í júní?

Bestu kveðjur héðan úr SPSS einangruninni...
Agnes Björg
Kandarar

Jólahittingurinn

14. desember 2007 klukkan 10:19
Hæ hæ!

Ég minni á jólahittinginn/jólaglöggið í kvöld, 14. desember.
Mæting hálf níu, níu í Sæviðarsund 13.
Það verður einhver jóladrykkur í boði en þeir sem vilja eitthvað annað eða
eitthvað meira að drekka ættu að koma með einhverja drykki með sér!

Hlakka mikið til að sjá þau ykkar sem komast!
Jólakveðja, Hafdís.
Kandarar

14.desember

05. desember 2007 klukkan 12:13
SÆL elskurnar mínar
 
Ætlaði bara að minna á fyrirætlanir okkar um jólaglögg þann 14.desember.
Er einhver sem vill bjóða heim í tilefni þess að setu okkar í Háskóla Íslands er lokið!!!
Vonandi verða öll verkefni búin og jólastemningin allsráðandi.

Hlakka til að heyra frá ykkur
kveðja
Snædís
Kandarar

SOS námskeiđ

08. nóvember 2007 klukkan 21:28
Sæl öll

var að ræða við Gabríelu um SOS námskeið. Okkur öllum, þeim sem eru í cand.psych. og MA sama hvort vinnu, fullorðins eða barna, er boðið að sitja slíkt námskeið hjá henni en það gefur okkur réttindi til að halda slíkt námskeið seinna meir. Hún mun halda námskeið þegar það hentar sem flestum okkar. Hennar vegna skiptir ekki máli hvort það sé fyrir eða eftir jól eða hvort það sé á kvöldin eða á daginn (einu sinni í viku). Það sem við þurfum því að gera er að reyna að finna góðan tíma fyrir þetta sem fyrst og láta Gabríelu vita (sem ég get gert). Þeir sem ekki kommenta hér hafa ekki ákvöðrunarrétt í þessu máli. Ég held að vika sé nóg til að komast að ákvöðrun um þetta, meirihlutinn mun ráða. Ákvöðrun verður því tekin síðastalagi 16. nóv á vísindadegi sálfræðinga á LSH. Þannig að koma svo, kommenta ef þið viljið hafa eitthvað um þetta að segja.

Gribbukveðja,
Elísa
Kandarar

SOS námskeiđ

08. nóvember 2007 klukkan 21:28
Sæl öll

var að ræða við Gabríelu um SOS námskeið. Okkur öllum, þeim sem eru í cand.psych. og MA sama hvort vinnu, fullorðins eða barna, er boðið að sitja slíkt námskeið hjá henni en það gefur okkur réttindi til að halda slíkt námskeið seinna meir. Hún mun halda námskeið þegar það hentar sem flestum okkar. Hennar vegna skiptir ekki máli hvort það sé fyrir eða eftir jól eða hvort það sé á kvöldin eða á daginn (einu sinni í viku). Það sem við þurfum því að gera er að reyna að finna góðan tíma fyrir þetta sem fyrst og láta Gabríelu vita (sem ég get gert). Þeir sem ekki kommenta hér hafa ekki ákvöðrunarrétt í þessu máli. Ég held að vika sé nóg til að komast að ákvöðrun um þetta, meirihlutinn mun ráða. Ákvöðrun verður því tekin síðastalagi 16. nóv á vísindadegi sálfræðinga á LSH. Þannig að koma svo, kommenta ef þið viljið hafa eitthvað um þetta að segja.

Gribbukveðja,
Elísa
Kandarar

Takk fyrir komuna

27. september 2007 klukkan 18:13
Sæl öll,


vildi bara þakka ykkur öllum, bæði 1. og 2. árs nemum, fyrir að mæta í partýið og vera til fyrirmyndar. Held það hafi aldrei verið jafn góð mæting í partý, allir orðnir vel þyrstir í að hittast og spjalla og kannski sletta aðeins úr klaufunum líka (sumir meira en aðrir).

Ég vil sérstaklega þakka Snædísi fyrir að hafa þolinmæði í að vera DJ allt kvöldið, alveg óumbeðin, þú stóðst þig vel, gó girl Brosandi

Ég skemmti mér mjög vel og vona að þið hafið gert það líka Glottandi 

kveðja,
Elísa

P.S. hver fór heim á sokkunum ?????? það eru stígvél í poka á ganginum  sem einhver skildi eftir.....
Kandarar

Partýiđ sem allir hafa beđiđ eftir međ óţreigju

11. september 2007 klukkan 17:28
Jæja þá er komið að partýi ársins. Partýi þar sem við 2. árs nemar bjóðum 1. árið velkomið. Það verður haldið föstudaginn 21.sept heima hjá mér í Engjaseli 65. Mæting sirka 20.30. Endilega komenntið á hvort þið komist eða ekki, bæði til að ég viti fjöldan og svo við getum fylgst með stemmaranum. Þið megið endilega koma með hugmyndir um þema eða skemmtilega partýleika (ekki spurningakeppni um Freud eða annað úr sálfræðinni samt, höfðar ekki alveg til okkar).

Kveðja,
Elísa
Kandarar

Fulltrúi á skorarfundi - party - LEIT AĐ SAL!

05. september 2007 klukkan 11:47
Velkomin aftur!

Ég var að senda tölvupóst á hópinn sem ég vil endilega að þið lesið og komið svo skoðunum ykkar á framfæri hér að neðan.

Málið snýst aðallega um að við hljótum að þurfa að halda party fljótlega og þá jafnvel að bjóða fyrsta árinu að vera með. Þá erum við orðin frekar mörg svo það er spurning hvort einhver hafi aðgang að sal sem fengist fyrir lítinn pening.

Hvað segiði?
Einhverjar hugmyndir?

Kveðja, Hafdís.
Kandarar

Partýi frestađ ţar til síđustu helgina í ágúst

28. júní 2007 klukkan 11:37
Hæ, hæ

þar sem mæting í partý virðist ekki ætla að verða góð þá ætla ég að fresta partýinu þar til síðustu helgina í ágúst.

Kveðja,
Elísa
Kandarar

Party time-TAKA TVÖ

04. júní 2007 klukkan 12:16
Sæl öll, smá breytingar á partý dagsetningu.

Verð að hafa partýið laugardaginn 30. júní kl. 20 þar sem pabbi minn á afmæli 29.júní, það er daginn sem ég ætlaði að hafa partýið. Ég veit ég er steikt, það að bjóða í partý þann dag hringdi engum bjöllum hjá mér fyrr en í morgun. Vona bara að það komist áfram sem flestir þrátt fyrir breytingar á dagsetningu, munið bara að taka hann frá.

Hlakka til að sjá ykkur.

Kveðja,
Elísa
Kandarar

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Könnun

Ćtlar ţú ađ mćta í partý ársins?

Myndirnar okkar

Bloggarar međal okkar

Ađrir tenglar